SKILDULESNING !
15.7.2010 | 11:33
Ég er svo hrifin ađ greinum Marinós G Njálssonar ađ ég birti nýjustu fćrslu hans hér fyrir neđan.Greinin er algjörlega hans.
Ţađ heldur áfram sjónarspiliđ í kringum dóm Hćstaréttar. Menn hamast á tölunni 900 milljörđum og segja hana vera upphćđina sem dómur Hćstaréttar virkar á. Enn og einu sinni verđ ég ađ benda á ađ ţetta er ekki rétt tala miđađ viđ upplýsingar sem komiđ hafa fram hjá Seđlabanka Íslands og bönkunum.
Samkvćmt frétt á Stöđ 2 á mánudag, ţá hefur Íslandsbanki viđurkennt ađ hafa fengiđ lánasöfn sín međ 47% afslćtti frá Glitni, Landsbankinn segir ađ afslátturinn hafi veriđ 34% og Arion banki ađ afslátturinn hafi veriđ í kringum 24%. Sé aftur horft til upplýsinga á vef Seđlabankans, ţá var virđi lánasafna bankanna 31.12.2009 um 35% af virđi innlendra lánasafna ţeirra í lok september 2008. Ţar munar mestu um lćkkun á virđi lánasafna eignarhaldsfélaga, enda virđist sem ţau hafi flest veriđ gervifélög til ađ fela raunverulega eignarađild á bönkunum og skráđum fyrirtćkjum.
En skođum tölur Seđlabankans. Taflan fyrir neđan er unnin upp í excel-skjalinu útlán_tímarađir.xls sem finna má á vef Seđlabankans. Eina breytingin er ađ ég tek tvo dálka međ tölum, ţ.e. desember 2009 og september 2008 og bćti viđ útreikning á muninum á ţessum tveimur dálkum. Nýjasta útgáfa af töflunni sýnir stöđuna í lok janúar, febrúar og mars 2010.
Seđlabanki Íslands | |||
Upplýsingasviđ | |||
HAGTÖLUR SEĐLABANKANS | |||
Flokkun útlána innlánsstofnana - tímarađir | |||
Milljónir króna | des.09 | sep.08 | Mismunur |
Innlendir ađilar, alls (liđir 1-9) | 1.678.578 | 4.786.249 | 65% |
Fyrirtćki | 1.074.056 | 1.987.460 | 46% |
Eignarhaldsfélög | 208.962 | 1.609.173 | 87% |
Heimili | 476.012 | 1.032.026 | 54% |
ţ.a. íbúđalán | 248.451 | 606.494 | 59% |
2 Yfirdráttarlán | 124.903 | 251.515 | 50% |
Fyrirtćki | 62.373 | 110.918 | 44% |
Eignarhaldsfélög | 9.593 | 33.979 | 72% |
Heimili | 47.269 | 78.280 | 40% |
4 Óverđtryggđ skuldabréf | 226.837 | 630.305 | 64% |
Fyrirtćki | 134.746 | 150.670 | 11% |
Eignarhaldsfélög | 70.510 | 415.679 | 83% |
Heimili | 14.948 | 26.724 | 44% |
5 Verđtryggđ skuldabréf | 491.687 | 973.626 | 49% |
Fyrirtćki | 163.853 | 191.832 | 15% |
Eignarhaldsfélög | 22.744 | 54.433 | 58% |
Heimili | 300.304 | 627.091 | 52% |
ţ.a. íbúđalán | 207.947 | 498.941 | 58% |
6 Gengisbundin skuldabréf | 885.623 | 2.855.024 | 69% |
Fyrirtćki | 670.968 | 1.441.289 | 53% |
Eignarhaldsfélög | 102.465 | 1.057.930 | 90% |
Heimili | 105.269 | 271.950 | 61% |
ţ.a. íbúđalán | 40.505 | 107.553 | 62% |
7 Eignarleigusamningar | 21.332 | 57.823 | 63% |
Fyrirtćki | 15.770 | 34.631 | 54% |
Eignarhaldsfélög | 98 | 0 | |
Heimili | 4.994 | 22.136 | 77% |
8 Gengisbundin yfirdráttarlán | 30.293 | 110.735 | 73% |
Fyrirtćki | 24.274 | 51.295 | 53% |
Eignarhaldsfélög | 2.429 | 42.345 | 94% |
Heimili | 2.891 | 5.207 | 44% |
9 Niđurfćrslur | -105.649 | -105.068 | -1% |
* nýjustu tölur eru bráđabirgđatölur | |||
Heimild: Upplýsingasviđ SÍ. |
Úr töflunni má lesa ađ virđi lána fyrirtćkja í árslok 2009 er 54% af ţví ţau voru í bankakerfinu 30.9.2008, virđi lána eignarhaldsfélaga er eingöngu 13% og virđi lána heimilanna er 46%. Hluta af skýringunni á ţessum mun má vafalaust finna í ţví ađ ekki fór öll innlend lán frá gömlu bönkunum til ţeirra nýju. Á međan ekki hefur veriđ greint frá ţví hve stór hluti lána heimilanna og fyrirtćkja urđu eftir í gömlu bönkunum, ţá er ekki hćgt ađ segja hvađ er rétt og hvađ er rangt. Hitt held ég ađ sé ótrúlegur snúningur á stađreyndum ađ segja ađ dómur Hćstaréttar geti haft í för međ sér 40-60% afskriftir á ţeim 900 milljörđum sem eru skráđir í bćkur bankanna sem gengistryggđ lán.
Gefum okkur ađ afsláttar tölur bankanna ţriggja séu réttar, ţ.e. 47% hjá Íslandsbanka, 34% hjá Landsbankanum (segir ađ vísu á vefsíđu bankans ađ ţađ sé afsláttur af nafnvirđi en samkvćmt fréttum á Stöđ 2 er afslátturinn af heildarupphćđ) og 24% hjá Arion banka. Nćst skulum viđ reikna međ ađ afsláttur af verđtryggđum húsnćđislánum hafi veriđ um 8 - 12% (tölur sem birtust í Morgunblađinu í mars). Ţađ ţýđir ađ önnur lán hafa veriđ tekin yfir á meiri afslćtti og ţar međ nokkuđ örugglega gengistryggđ lán. Nćst er rétt ađ benda á, ađ bankarnir hafa ekki allir fćrt gengishagnađ til breytingar á höfuđstól lánanna eftir ađ ţau voru tekin yfir. 900 milljarđa talan er ţví tala sem ţegar hefur, samkvćmt upplýsingum frá bönkunum sjálfum, veriđ fćrđ verulega niđur. Innheimtukrafan á hendur lántökum hefur veriđ mun hćrri svo nemur allt ađ 8-900 milljörđum, ef ekki meira. Samkvćmt tölum Seđlabankans voru gengistryggđ lán bankakerfisins (ţ.e. banka og sparisjóđa) skráđ á 775 milljarđa um síđustu áramót. Ađrar lánastofnanir hafa ţví veriđ međ gengistryggđ lán upp á ca. 125 milljarđa til ađ fá 900 milljarđa alls. Ţessi tala, 775 milljarđar, er niđurfćrđ tala. Ţađ er búiđ ađ reikna inn í hana a.m.k. 47% hjá Íslandsbanka, 34% afslátt hjá Landsbankanum og 24% afslátt hjá Arion banka. Ađ ćtla telja fólki trú um ađ ţađ ţurfi ađ afskrifa 50-60% til viđbótar er í besta falli góđur skáldskapur, en í versta falli tilraun til ađ blekkja ţjóđina.
Ég skora á stjórnvöld og bankana ađ leggja spilin á borđiđ. Sýniđ okkur međ tölum í hverju samningarnir um nýju bankana fólust. Segiđ okkur nákvćmlega hvađa afsláttur fylgdi hverri tegund lána í samrćmi viđ flokkun Seđlabankans. Ef menn vilja ekki gera ţađ banka fyrir banka, ţá er besta mál ađ taka tölurnar saman. Segiđ okkur hvert var virđi lánasafnanna í gömlu bönkunum og hvert virđi ţeirra var í nýju bönkunum viđ yfirtöku. Segiđ okkur líka hvert var virđi ţeirra lánasafna sem urđu eftir í gömlu bönkunum, aftur í samrćmi viđ flokkun Seđlabankans. Ţađ er mun betra ađ ţessar tölur komi frá opinberum ađilum á Íslandi, en ađ ţeim verđi á einhverjum tímapunkti lekiđ í fjölmiđla. Verđi viss um ađ ţađ mun gerast. Einn daginn mun koma fram "lítill bankamađur" og uppljóstra um tölur síns banka. Sannleikurinn mun finna sér leiđ upp á yfirborđiđ.
Ég tek ţađ fram, ađ allir mínir útreikningar eru byggđir á opinberum tölum. Ég hef hvergi komist í leynilegar upplýsingar eđa veriđ sagt eitthvađ í trúnađi sem ég er ađ nýta mér. Sé villa í opinberum gögnum, ţá getur ţađ leitt til ţess ađ ályktanir mínar séu rangar. En ţar til einhver sannfćrir mig um annađ, ţá get ég ekki annađ en taliđ málflutning minn byggja á traustum rökum.
Íslenska fjármálakerfiđ í sviđsljósiđ á ný |
Athugasemdir
Ţessir háu herrar halda ađ ef ţeir massa nóg af tölum á okkur hinn venjulega borgara ţá nái ţeir áfram ađ ljúga ađ okkur um alla hluti. Marinó er góđur.
Ásdís Sigurđardóttir, 15.7.2010 kl. 11:50
já Ásdís, mér finnst hann vera bestur :)
Inga Sćland Ástvaldsdóttir, 15.7.2010 kl. 16:28
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.