Siðlaust bruðl !
9.9.2010 | 07:21
Það er með ólíkindum vanvirðing ráðamanna á tómum ríkissjóði. Á meðan að tug þúsunda landsmanna ganga um atvinnulausr þykir ekkert að því að kreista 200 millj. út úr blæðandi ríkissjóði. Ég bara átta mig ekki á kostnaðinum nema að við landsmenn séum að borga brúsann fyrir allt heila liðið.
Um 70 manns í sendinefnd forsetans í Sjanghæ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Brostu kona brostu - þetta er allt samkvæmt starfsáætlun ríkisstjórnarinnar - og forsetinn er að ganga í gegnum fjörbrot klappstýru útrásarinnar sem hann leiddi svo snöfurmannlega - að eigin sögn þegar hann var að opna dyrnar fyrir þann hóp víða um heiminn.
Fyrst fer þessi hópur og selur hugmyndir - fjárfestar fara að vinna að fjárfestingum hér og þá kemur sjs og segir stopp - kæri mig ekki um svona útlenda peninga - hafna atvinnuuppbyggingu og atvinnuskapandi verkefnum.
Og allt heldur áfram að fara steingríms til.
Ólafur Ingi Hrólfsson, 9.9.2010 kl. 07:56
Ásdís Sigurðardóttir, 9.9.2010 kl. 14:22
hehehe já það er málið Ólafur , hafna bara öllu draslinu eins og það leggur sig. Hins vegar ef við förum ekki að standa upp á afturlappirnar með alvöru bylgingu þá heldur þessi spilling áfram og engin breytin verður í framtíðinni.
Inga Sæland Ástvaldsdóttir, 9.9.2010 kl. 14:43
Nú er það komið í ljós að þessi frétt í Mogganum er hreinn uppspuni frá rótum eins og svo allt of margar aðrar fréttir sem ágætur ritstjórinn ljómar með að setja á prent. Ótrúlega siðlaust að nýta sér Moggann sem öflugt áróðurs og lygablað til að blekkja landsmenn.
Inga Sæland Ástvaldsdóttir, 11.9.2010 kl. 09:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.