FOR YOUR EYES ONLY !
14.7.2010 | 16:21
Rosalega er vond lykt af þessu öllu saman. Nokkrar spurningar sem ég hef verið að velta fyrir mér en er ómögulegt að svara .
Hvernig stendur á því að forstjori Iceland hafði ekki hugmynd um þessar 202 millj. punda fyrst þegar hann var spurður um þær?
Ætli það sé lenska í bresku viðskiptalífi að safna peningum upp á milljónir punda til geymslu á reikningum sem eru merktir öðrum en fyrirtækinu sjálfu ?
Er Icelandic food svo vel statt fjárhagslega að það þurfi ekki milljónirnar sínar í veltuna?
Hvers vegna svona leyndó hjá Jóni Ásgeiri?
Ætli Jón Ásgeir hafi mútað forstjóranum fyrir framburð hans?
Er þetta allt saman PAKK upp til hópa?
Milljarðar í eigu Iceland Foods | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já það eru margar spurningar, og svörin líka. Hverjum getum við treyst ???? Ætli slitastjórnin geti ekki fengið að skoða ferli peningana ? Mér skilst að Iceland sé að stæðstum hluta í eigu Íslenska ríkisins.
Baldur Már Róbertsson, 14.7.2010 kl. 16:49
Já mikið rétt Baldur, ég myndi segja að engum væri treystandi ef ég ætti að svara þeirri spurningu. Ég veit hins vegar ekki hvað slitastjórnin hefur sterk ítök inn í breska banka til að geta fengið uppl. á þeim bænum. Hins vegar finnast mér laun þeirra stjórnarmanna helv. há svo ekki sé meira sagt. Hvað ríkið á mikið í Iceland keðjunni veit ég ekki. Sjálfsagt búið að gefa kröfuhöfunum margumtöluðu sinn hlut í keðjunni svona gratis ? Yrði ekki hissa .
Inga Sæland Ástvaldsdóttir, 14.7.2010 kl. 19:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.